Flensborgarhlaupið, 20. sept. kl. 17:30
Flensborgarhlaupið 2022
Hlaupið fer fram þann 20. september og hægt er að hlaupa 5 km og 10 km vegalengdir auk þess sem hægt er að taka þátt í 3 km skemmtiskokki. Að venju er hlaupið styrktarhlaup í þágu ungs fólks og að þessu sinni rennur ágóðinn til verkefnisins Ungt fólk og sorgin á vegum Sorgarmistöðvarinnar. Sorgarmiðstöðin er starfrækt í Lífsgæðasetri Skt. Jósefsspítala og er samstarfsverkefni grasrótarfélaga á sviði sorgarúrvinnslu, þau eru Ný dögun, Ljónshjarta og Gleym mér ei.
Hægt er að skrá sig í hlaupið á flensborgarhlaup.is eða á hlaup.is
- 1.500 krónur óháð vegalengd (20 ára og yngri)
- 3.500 krónur fyrir 10 km og 5 km
- 2.500 krónur fyrir skemmtiskokk
Við hvetjum alla vini okkar og velunnara að taka þátt í þessu verkefni með okkur og hlaupa til góðs þann 20. september