Íþróttavika Evrópu 23.- 30. september

Vikuna 23. – 30. september hefur mikið verið um að vera á öllu landinu, í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Heilsueflandi sveitarfélög, íþrótttahéruð, íþróttafélög, fyrirtæki í heilsueflingu og framhaldsskólar hafa útbúið metnaðarfullar dagskrár og viðburði til að kynna hreyfingu og heilsutengda viðburði í sínu nærumhverfi.
Vikan í höfuðborginni byrjaði með sjóbaðs-zumba gleðisprengju í Nauthólsvík, laugardaginn 23. september, sem tókst með eindæmum vel.
Á dagskrá í Íþróttavikunni voru til dæmis opnir tímar/æfingar hjá íþróttafélögum sem vildu kynna sínar íþróttir og námskeið. Líkamsræktarstöðvar voru með opin hús, boðið var upp á afríska dansa með lifandi trommuslætti, Haustmót ÍSS var með kynningu á skautaati og frítt var í sundlaugar víða um land. Sveitarfélögin komu virkilega sterk inn í ár og buðu nærri 30 sveitarfélög uppá fjölbreyttar og metnaðarfullar dagskrár eins og Hamingjudaga, Heilsuvikur, heilsugöngur, fjölskylduhlaup, auk fyrirlestra sem fluttir voru m.a. af Dr. Viðari Halldórssyni, Erlu Björnsdóttur, Arnari Hafsteinssyni, Pálmari Ragnarssyni, Margréti Láru Viðarsdóttur og Einari Erni Guðmundssyni, sem fóru víða um landið þessa viku. Sextán af þeim sóttu um styrk til ÍSÍ
Þeir framhaldsskólar sem voru með, settu mikinn metnað í vikuna og buðu nemendum uppá heilsutengda viðburði, eins og göngur, ratleiki, fjallgöngur og bekkpressukeppni auk ýmissa annarra viðburða.
Samfélagsmiðlar BeActive Iceland voru stútfullir af skemmtilegu efni sem var merkt #beactiveiceland og #beactive.
Flesta viðburði má sjá á heimasíðu verkefnisins www.beactive.is
Fleiri myndir frá vikunni má sjá
hér
ÍSÍ þakkar öllum þeim sem gerðu Íþróttaviku Evrópu ógleymanlega í ár og hlökkum til að sjá hvað ykkur dettur í hug 2024.
Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur fengið styrk úr Erasmus+ styrkjakerfinu til þess að standa fyrir verkefninu hér á landi. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
ÍSÍ hvetur þá sem vilja vera með á næsta ári til að senda póst á beactive@isi.is