This is a subtitle for your new post

Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
Gott og einfalt er matarvefur SÍBS og Krabbameinsfélags Íslands með hollum og fjölbreyttum uppskriftum sem taka mið af opinberum ráðleggingum um mataræði.
Á vefnum má meðal annars finna hugmyndir að máltíðum og millimálum sem henta vel með virkum lífsstíl ásamt fræðslu og verkfærum sem auðvelda skipulag máltíða.
Í kynningunni verður sýnt hvað vefurinn hefur upp á að bjóða og hvernig nýta má Gott og einfalt til heilsueflingar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og endilega deilið viðburðinum.
Linkur á TEAMS
https://teams.microsoft.com/meet/346524918256958...
Meeting ID: 346 524 918 256 958
Passcode: vZ2bX97t












