Íþróttavika Evrópu 2026 - Fjölbreytt dagskrá og góð þátttaka um land allt

Íþróttavika Evrópu
#beactive, fór fram dagana 23. til 30. september.
Ísland hefur tekið virkan þátt í Íþróttaviku Evrópu frá árinu 2015 og er verkefnið styrkt af Evrópusambandinu í gegnum framkvæmdastjórn Evrópu (European Commission).
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur og mikilvægur liður í að efla heilsu og virkni landsmanna.
ÍSÍ sækir um styrk og ber ábyrgð á að deila honum út til framkvæmdaaðila. Umsóknir um styrk voru 56 og voru umsækjendur sveitarfélög, framhaldsskólar og íþróttahéruð. Umsækjendur hafa svo virkjað íþróttafélög og heilsutengda starfsemi í bæjarfélaginu til að vera með tilboð í dagskrá vikunnar. Hámarksstyrkur fyrir sveitarfélög og íþróttahéruð var 500.000 krónur og fyrir framhaldsskóla 300.000 krónur. Með þessum stuðningi var unnt að tryggja öfluga og fjölbreytta dagskrá víða um land en í ár voru fleiri sem sóttu um styrk en árið á undan. Styrkt voru 28 sveitarfélög, 5 íþróttahéruð og 18 framhaldsskólar. Mikill metnaður var í dagskrá og má sjá flestar þeirra undir viðburðir á
www.beactive.is
Það sem stóð uppúr var fjölbreytni viðburða og dagskrá þar sem fólk á öllum aldri gat fundið sér hreyfingu við sitt hæfi. Þar má nefna gusur sem voru haldnar víða um land, sem löðuðu að sér fjölda þátttakenda, Bangsagöngu uppá á Úlfarsfell sem vakti mikla athygli og sameinaði útivist, fjölskyldustemningu og hreyfingu. Þá var gaman að sjá óhefðbundna viðburði eins og Hobby Horse, sem sýnir vel hvernig hægt er að nálgast hreyfingu á skapandi og skemmtilegan hátt en einnig vöktu viðburðir á borð við sundballett, zumba og fjölbreyttir göngu- og heilsuviðburðir athygli og undirstrikuðu að hreyfing getur tekið á sig margar myndir.
Jafnframt var lögð áhersla á heilsu og vellíðan í víðum skilningi með fræðslu um mataræði, svefn og þátttöku í íþróttum. Samhliða fjölmörgum opnum hreyfiviðburðum sýndi það vel að Íþróttavika Evrópu snýst ekki aðeins um íþróttaiðkun heldur um að hvetja fólk til virks og heilbrigðs lífsstíls á eigin forsendum.
Það sem stóð þó kannski hvað mest upp úr var hversu víðtæk þátttakan var um land allt. Frá stærri sveitarfélögum til smærri byggðarlaga sameinaðist fólk um eitt sameiginlegt markmið: að finna hreyfigleðina, vera virkt saman og hreyfa sig á sinn hátt. Það voru einmitt skilaboð Íþróttaviku Evrópu í ár „Be active your way“
Laugardagurinn 26. september -
#BeactiveNight
#BeActiveNight var einn af hápunktum Íþróttaviku Evrópu. Síðustu ár hefur fókus verið á skemmtun í vatni og margar sundlaugar hafa verið með skemmtilega viðburi. Sjóbað og zumba í Nauthólsvík sameinaði ferska útivist og hreyfigleði, á meðan samflot í sundlaugum víða um land gaf þátttakendum tækifæri til að njóta slökunar í vatni. Sundlauga zumbapartý sköpuðu líflega stemningu og sýndu vel hvernig hægt er að tengja saman hreyfingu og gleði þar sem allur aldur tekur þátt. Viðburðirnir endurspegluðu vel anda BeActive Night, þar sem markmiðið er að hvetja fólk til að prófa eitthvað nýtt og upplifa hreyfingu á skemmtilegan og aðgengilegan hátt utan hefðbundins skóla- og vinnudags.
Undir Íþróttaviku Evrópu eru einnig Göngum í Skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ.
Göngum í skólann var sett í Árskóla á Sauðárkrók, föstudaginn 4. september, 55 skólar tóku þátt. Ólympíuhlaup ÍSÍ var sett í Dalvíkurskóla, fimmtudaginn 3. september, skólar hafa til áramóta til að framkvæma hlaupið. Þessi tvö verkefni leggja áherslu á hreyfingu barna og ungmenna á grunnskólaaldri.
Það er ljóst að Íþróttavika Evrópu tókst einstaklega vel. Með samstilltu átaki sveitarfélaga, skóla, íþróttahreyfingarinnar og almennings hefur tekist að skapa hvetjandi umgjörð fyrir daglega hreyfingu og heilsueflingu sem nær til allra aldurshópa og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Samfélagsmiðlar ÍSÍ og Beactive Iceland voru mjög lifandi og skemmtilegir á meðan Íþróttavika Evrópu stóð yfir þar þar sem margir merktu myndir og myndbrot með @beactiveiceland eða #beativeiceland og efninu var deilt á samfélagsmiðlum.
Myndir frá vikunni má finna hér
Takk fyrir að taka þátt - #beactive












