Árgangamót ÍA 2026

Laugardaginn 26. september fer fram árgangamót Knattspyrnufélag ÍA og við hvetjum alla til að dusta rykið af takkaskónum, smala saman krökkunum úr árganginum og mæta til leiks! Öll þau sem eru fædd frá árinu 2000 - 1900 eru gjaldgeng.
Hvað er betra en að hittast aftur, rifja upp gömlu taktana og sigra árganginn fyrir neðan sig?
Jú... að vinna árganginn fyrir ofan sig!
En það allra besta er auðvitað að koma saman með gömlum vinum og vinkonum, næra félagslega tankinn og rifja upp fornar hetjudáðirnar, hvort sem þær áttu sér stað inni á vellinum eða í áhorfendabrekkunni.
Skráningargjald er aðeins 5.000 kr. á lið. Hægt er að skrá lið hér https://docs.google.com/.../1FAIpQLSdakJqE78Mr6Y.../viewform
Þetta frábært tækifæri fyrir alla til að taka þátt og hreyfa sig í góðum félagsskap.
Og ekki skemmir fyrir að Akraneskaupstaður býður öllum í í sund þann daginn, þannig að eftir tilþrif dagsins er hægt að skella sér í kalda pottinn og leyfa líkamanum jafna sig!












