Íþróttavika Evrópu á Vopnafirði

Það verður nóg um að vera á Vopnafirði næstu daga þegar Íþróttavika Evrópu fer fram dagana 23.–30. september.
Markmiðið er einfalt: að hreyfa sig, hafa gaman og helst fá fleiri með! Það ættu flest að finna eitthvað við sitt hæfi í dagskrá vikunnar. Hægt verður að skella sér í fjölskyldufótbolta, zumba, sund, gönguferð, blak og ræktina – og fyrir þau sem vilja bæta smá ævintýri við vikuna verður einnig afsláttur af kajakferðum.
Íþróttavika Evrópu er haldin árlega víða um álfuna undir merkjum #BeActive og snýst fyrst og fremst um að minna okkur á mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi. Öll hreyfing skiptir máli og hún er oft enn skemmtilegri í góðum félagsskap! Sjá dagskrá Íþróttaviku Evrópu á Vopnafirði hér að ofan.

Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum k










