Púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi

Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund!
Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
Púttgolf er skemmtileg og aðgengileg hreyfing sem hentar flestum. Þar reynir á nákvæmni, jafnvægi og einbeitingu, en um leið er þetta afslöppuð og félagsleg leið til að hreyfa sig og hafa gaman.
Það þarf enga fyrri reynslu og auðvelt er að taka þátt á eigin forsendum. Tilvalið fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt, koma sér aðeins á hreyfingu og njóta góðrar stundar með öðrum
Dagana 23.–30. september fögnum við Íþróttaviku Evrópu, sem haldin er í yfir 40 Evrópulöndum. Markmiðið er að hvetja okkur öll til að hreyfa okkur meira og finna þá hreyfingu sem hentar hverju og einu okkar.
Þriðjudagur 29. september
Kl. 10:00–11:00
Samfélagshúsið Vitatorg
Þátttaka er ókeypis
Linkur á þátttöku












