Sundballet, föstudaginn 25. september kl. 17:00 og 20:00

Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.

Tíminn sjálfur er ókeypis en þátttakendur greiða venjulegt gjald ofan í laugina. Um er að ræða þátttökutíma, ekki sýningu. Ekki þarf að skrá sig, bara mæta. Tíminn er öllum opinn - svo lengi sem fólk er synt og nær til botns. Börn undir 10 ára þurfa að hafa fullorðinn með sér.

Við erum Sundballettinn Eilífðin, og þið eruð Sundballettinn Eilífðin.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.


By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Komdu og hreyfðu þig hjá okkur í Dalvíkurbyggð! -Frítt inn á alla viðburði!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Íþróttavika Evrópu á Vopnafirði
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Nú hefur dagskrá Íþróttaviku Evrópu litið dagsins ljós. Þar sameinast félagasamtök og einkaaðilar sveitarfélaginu í að búa til sem fjölbreyttasta dagskrá sem allir geta nýtt sér án endurgjalds.
By Linda Laufdal • September 22, 2026
Opnunarhátíð Íþróttaviku Evrópu á Kaffi Flóru, í Grasagarðinum. Íþróttavika Evrópu, BeActive, er haldin frá 23.september- 30.september og ætlar Reykjavíkurborg að bjóða upp á hreyfingu og útivist fyrir fjölskylduna, íbúa og eldri borgara víðs vegar um Reykjavík