This is a subtitle for your new post

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum kostur á að kynna sér fjölbreytta hreyfingu og íþróttastarf í sveitarfélaginu.

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og þátttaka er öllum opin.

Dagskrá vikunnar er meðal annars:

  • Frítt í opna tíma í íþróttamiðstöðinni
  • Opnar æfingar hjá barna- og ungmennastarfi aðildarfélaga UMSB
  • Vinavika hjá Metabolic
  • Frí Gusa hjá Völvusaunagusu fyrir 60+
  • Göngufótbolti
  • Virkniþing Borgarbyggðar – Kynningar á fjölbreyttri hreyfingu og íþróttastarfi í héraðinu

Við hvetjum alla til að nýta tækifærið, mæta á viðburði vikunnar, prófa nýja hreyfingu og njóta þess að vera virk í góðum félagsskap.

Allir viðburðir vikunnar eru auglýstir á Facebook-síðu Íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarbyggð

Taktu þátt í Íþróttaviku Evrópu og finndu þína hreyfingu!


By Linda Laufdal September 23, 2026
Komdu og hreyfðu þig hjá okkur í Dalvíkurbyggð! -Frítt inn á alla viðburði!
By Linda Laufdal September 23, 2026
Íþróttavika Evrópu á Vopnafirði
By Linda Laufdal September 23, 2026
Nú hefur dagskrá Íþróttaviku Evrópu litið dagsins ljós. Þar sameinast félagasamtök og einkaaðilar sveitarfélaginu í að búa til sem fjölbreyttasta dagskrá sem allir geta nýtt sér án endurgjalds.
By Linda Laufdal September 22, 2026
Opnunarhátíð Íþróttaviku Evrópu á Kaffi Flóru, í Grasagarðinum. Íþróttavika Evrópu, BeActive, er haldin frá 23.september- 30.september og ætlar Reykjavíkurborg að bjóða upp á hreyfingu og útivist fyrir fjölskylduna, íbúa og eldri borgara víðs vegar um Reykjavík
By Linda Laufdal September 22, 2026
Leikfimi með Snorra verður í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43 föstudaginn 25. september kl. 13:00-13:30. Það er frítt í leikfimi með Snorra í september og öll velkomin. Snorri er íþróttafræðingur og einkaþjálfari og leiðir fólk í gegnum frábærar og fjölbreyttar æfinga
By Linda Laufdal September 22, 2026
Kópavogsbær tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 23.-30.september. Ókeypis á alla viðburði og öll velkomin. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á suma viðburði.
By Linda Laufdal September 22, 2026
Taktu þátt í skemmtilegum ratleik á Þelamörk í tilefni af Íþróttaviku Evrópu! Ratleikurinn stendur yfir 23.–30. september og þú ræður sjálf/ur hvenær þú tekur þátt. Finndu stöðvarnar, hreyfðu þig og leystu fjölbreytt verkefni á leiðinni. Ratleikurinn hentar öllum aldurshópum.
By Linda Laufdal September 22, 2026
Í sal Samfélagshússins Bólstaðarhlíð 43 er Boccia miðvikudaginn 23. september kl. 10:30-11:00. Viðburðurinn er gjaldfrjáls og öll velkomin að taka þátt.
By Linda Laufdal September 22, 2026
Göngutúr um miðbæinn #BeActive í Reykjavík. Gengið frá Samfélagshúsinu á Vitatorgi kl. 10:30. Öll velkomin.
By Linda Laufdal September 22, 2026
Zumba með Bollywood Iceland í Samfélagshúsinu á Vitatorgi, miðvikudaginn 24. september kl. 10:30. Viðburðurinn er ókeypis og öllum opið. #BeActive