Íþróttavika Evrópu í Dalabyggð og Reykhólahreppi

Íþróttavika Evrópu fer fram sem fyrr dagana 23.-30. september!
Þann 23. september verða námskeiðsdagar í bæði Auðarskóla og Reykhólaskóla. Þar verður boðið uppá ýmis konar námskeið á skólatíma og verður það tilkynnt síðar ásamt dagskránni.
Námskeið sem verða í boði:
- Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna
- Sundnámskeið fyrir 1.-4. bekk
- Flotnámskeið
- Yoga
- Fjallganga
- Skemmtikvöld
- Þolfimitímar
- Keyrum þetta í gang! námskeið fyrir byrjendur í ræktinni
- Qigong orkuæfingar
- Sjósund
Dagskrá kemur út á næstu dögum!

Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum k










