Leikfimi með Snorra í Bolstaðarhlíð

Leikfimi með Snorra verður í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43 föstudaginn 25. september kl. 13:00-13:30.
Það er frítt í leikfimi með Snorra í september og öll velkomin.
Snorri er íþróttafræðingur og einkaþjálfari og leiðir fólk í gegnum frábærar og fjölbreyttar æfingar.

Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum k










