Skíðagöngufélagið Ullur - Kynning gönguskíðum

Í tilefni Íþróttaviku Evrópu verður Skíðagöngufélagið Ullur með kynningu á gönguskíðum og býður gestum og gangandi að prófa hjólaskíði.
Kynningin verður á bílastæðinu við Árbæjarsafnið milli kl. 17-19.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) vegna Íþróttaviku Evrópu.
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive
Linkur á viðburð












