Komdu í sjóinn meðSJÓR

Í tilefni Íþróttaviku Evrópu
#Beactive verður SJÓR með kynningu á sjósundi í Nauthólsvík fimmtudaginn 24. September kl 17.00. Við segjum stuttlega frá sjósundi og kostum þess að stunda sjóinn fyrir líkama og sál, hvernig sé best að bera sig að og helstu öryggisatriði. Við förum síðan í sjóinn með þeim sem vilja prófa og hitum okkur upp í pottinum. Boðið verður uppá klassískar sjórbaðsveitingar. Mætið með sundföt, handklæði og hlý föt. Ákjósanlegt er að mæta með sundskó en reynt verður að bjóða upp á lánsskó fyrir þá sem vantar. Allir velkomnir
https://www.facebook.com/events/1109788791740422

Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum k











































