Göngum í skólann var sett í Árskóla á Sauðárkróki 4. september

Verkefnið Göngum í skólann 2026 hefst formlega í dag og stendur það til 7. október en þá er alþjóðlegi göngudagurinn í skólann (International Walk to School Day). Setningarathöfnin átti sér hins vegar stað í Árskóla á Sauðárkróki á föstudaginn síðastliðinn. Nemendur, starfsfólk og gestir komu saman á íþróttavelli skólans og gengu að athöfn lokinni stuttan hring um nágrennið.

Kristján Bjarni Halldórsson, skólastjóri Árskóla, bauð gesti og nemendur velkomna. Ragnhildur Skúladóttir, sviðstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, kynnti verkefnið og Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, flutti ávarp. Þá flutti fulltrúi lögreglunnar stutt erindi um umferðaröryggi og öruggar ferðavenjur til og frá skóla.

Göngum í skólann hefur verið fastur liður í skólastarfi víða um land um árabil. Starfsfólk fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ferðast um landið á hverju hausti og setur verkefnið formlega af stað. Markmiðið er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla og auka þannig daglega hreyfingu og bæta heilsu.

Verkefninu er einnig ætlað að:

-efla færni barna til að ferðast á öruggan hátt til skóla,
-kenna reglur um umferðaröryggi,
-draga úr umferð við skóla,
-bæta loftgæði og öryggi í nágrenni skóla,
-auka vitund um umhverfismál og gönguvænt nærumhverfi.

Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ eru hluti af Íþróttaviku Evrópu, BeActive, sem hvetur fólk á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og þátttöku í íþróttum.

Samstarfs og styrktaraðilar Göngum í skólann eru European Commission #BeActive, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri og Sysavarnarfélagið Landsbjörg.

Hér má sjá fleiri myndir


By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k