Mikill fjöldi sótti um og fékk styrk vegna Íþróttaviku Evrópu 2026

Mikill áhugi er á þátttöku í Íþróttaviku Evrópu 2026 og hafa fjölmörg sveitarfélög, íþróttahéruð og framhaldsskólar um land allt sótt um og hlotið styrk til að standa fyrir fjölbreyttum hreyfi- og heilsueflingarverkefnum. Samtals bárust 56 umsóknir, en styrkt verða 28 sveitarfélög, 5 íþróttahéruð og 18 framhaldsskólar.

Sveitarfélögin sem fengu styrk eru Akranes, Akureyrarbær, Borgarbyggð, Dalabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Garðabær, Grundafjarðarbær, Horgársveit, Hrunamannahreppur, Húnabyggð, Hveragerðisbær, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Langanesbyggð, Mosfellsbær, Norðurþing, Reykjavíkurborg, Reykhólahreppur, Seltjarnarnes, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Snæfellsbær, Stykkishólmur, Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Ölfus, Sveitarfélagið Vogar, Vestmannaeyjabær og Vopnafjarðarhreppur

Íþróttahéruðin eru, ÍA, UMSB, UDN, HSS og HSÞ.


Framhaldsskólarnir eru, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Fjölbrautarskólinn við Ármúla, Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ (FMOS), Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Menntaskólinn á Akureyri, Framhaldsskólinn á Húsavík, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Menntaskólinn við Laugarvatn, Framhaldsskóli Vestmannaeyja, Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi (FVA).

Styrkirnir munu nýtast til að efla þátttöku almennings í hreyfitengdum viðburðum í Íþróttaviku Evrópu sem fer fram dagana 23. til 30. september undir slagorðinu #BeActive.


By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k