Petanque, frisbígolf, Rathlaup, hjólafjör og Dr. Bk í frístundagarðinum Gufunesi

Frá kl 12-14 þann 26. september í frístundagarðinum Gufunesi í tilefni Íþróttaviku Evrópu!

Petanque Reykjavík verður með kynningu þar sem gestum gefst kostur á að prófa að kasta kúlum eftir ákveðnum reglum og reyna þannig á leikni og nákvæmi.

Frisbígolffélag Reykjavíkur verður með kynningu á frisbígolfi og verður gestum boðið að prófa þessa kastíþrótt.

Rathlaupafélagið Hekla setur upp braut þar sem fólki gefst kostur á að prófa skemmtilega útivist þar sem notast er við kort til að finna ákveðna staði á sem fljótlegastan hátt.

Hjólafélag Reykjavíkur verður með hjólafjör þar sem ungir sem aldnir reyna á hjólhesta sína.

Dr. Bæk verður með ástandsskoðun á hjólhestum gesta og vottar heilsu þeirra.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) vegna Íþróttaviku Evrópu.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive


By Linda Laufdal September 18, 2026
Laugardaginn 26. september fer fram árgangamót Knattspyrnufélag ÍA og við hvetjum alla til að dusta rykið af takkaskónum, smala saman krökkunum úr árganginum og mæta til leiks
By Linda Laufdal September 18, 2026
Í tilefni Íþróttaviku Evrópu verður boðið upp á Samflot í Árbæjarlaug, föstudaginn 25. september kl. 19.00.
By Linda Laufdal September 18, 2026
Komdu og vertu með í Zumba stuði í Grafarvogslauginni! Kennarinn Max mun leiða dansinn við smitandi takt við sundlaugarbakkann! Tilvalið fyrir öll að prufa!
By Linda Laufdal September 18, 2026
Í tilefni Íþróttaviku Evrópu verður Skíðagöngufélagið Ullur með kynningu á gönguskíðum og býður gestum og gangandi að prófa hjólaskíði.
By Linda Laufdal September 18, 2026
Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu ætlum við að staldra við og velta fyrir okkur spurningunni: Af hverju er Akranes einn fremsti íþróttabær landsins?
By Linda Laufdal September 17, 2026
Verið öll hjartanlega velkomin í hressandi vatnsleikfimi í heimsins bestu sundlaug! Viðburðurinn er gjaldfrjáls og er hluti af íþróttaviku Evrópu #BeActive 🥳
By Linda Laufdal September 16, 2026
Heilsudagar í Hólminum eru haldnir dagana 23. september - 1. október í tilefni af íþróttaviku Evrópu sem haldin víðsvegar um álfuna í september á ári hverju
By Linda Laufdal September 16, 2026
Framhaldsskólinn á Húsavík tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal September 16, 2026
Þann 23. september verða námskeiðsdagar í bæði Auðarskóla og Reykhólaskóla. Þar verður boðið uppá ýmis konar námskeið á skólatíma og verður það tilkynnt síðar ásamt dagskránni.
By Linda Laufdal September 14, 2026
Það verður nóg um að vera dagana 23. - 30. september í Fjarðarbyggð. Finndu þína hreyfingu og vertu með!