Íþróttavika Evrópu í Hörgársveit

Hreyfing er fyrir alla og í Íþróttaviku Evrópu ætlum við að hreyfa okkur saman í Hörgársveit!

Í vikunni verður boðið upp á fjölbreyttar hreyfingar og skemmtileg verkefni fyrir fólk á öllum aldri. Markmiðið er ekki að vera bestur eða hraðastur, heldur einfaldlega að hreyfa sig, prófa eitthvað nýtt og eiga góða stund saman.

Meðal þess sem verður í boði er ratleikur um Hörgársveit, þar sem þátttakendur geta leyst verkefni, hreyft sig, skoðað umhverfið og fræðst aðeins um sveitarfélagið. Ratleikurinn verður í boði alla vikuna og hægt er að taka þátt þegar manni hentar.

Það verður líka hægt að taka þátt í ýmsum íþrótta- og hreyfiviðburðum.

Öll eru velkomin börn, fullorðnir, fjölskyldur og þau sem eru kannski ekki vön að hreyfa sig mikið.

Fylgist með hér á viðburðinum – nánari upplýsingar um hvern viðburð, tímasetningar og annað sem þarf að vita verða birtar hér þegar nær dregur.

Tökum þátt, hreyfum okkur og verum virk í Hörgársveit!

#BeActive #ÍþróttavikaEvrópu #Hörgársveit See less

Linkur á Facebook viðburð


By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k