Götuganga Akureyrar

Götuganga Akureyrar var haldin í fjórða sinn sunnudaginn 13. september. Í skínandi veðri gengu um 40 manns 4,7 km meðfram Pollinum.

Héðinn Svarfdal bauð alla velkomna, Unnar Vilhjálmsson stjórnaði skemmtilegri upphitun og bæjarstóri Akureyrar, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, ræsti keppendur. Afar og ömmur voru hvött til að taka barnabörnin með sér í gönguna svo úr varð skemmtileg blanda af fjölskyldum og stökum þátttakendum á öllum aldri, frá þriggja ára til áttatíu ára.

  • Karl Guðmundsson kom fyrstur gangandi í mark, hann var 38 mínútur og 33 sekúndur á leiðinni.
  • Önnur úrslit má finna hér

Allir þátttakendur fengu endurskinsmerki frá samfélagslögreglunni sem mætti á staðinn ásamt hressingu frá MS og CCEP að göngu lokinni. Auk þessa fengu nokkrir þátttakendur útdráttarvinninga frá Sundlaug Akureyrar, Samherja, Kjarnafæði eða Sportver, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Sjálfboðaliðar frá Ungmennafélagi Akureyrar stóðu vaktina við afhendingu keppnisgagna, tímamælingar og við að vísa þátttakendum leiðina, með brosi á vör. Undanfari vísaði leiðina á hjóli, eftirfari gætti þess að enginn yrði skilinn eftir. Brautarverðir gættu þess að göngufólk færi rétta leið og að snúið væri við á réttum stað. 

Akureyrarbær
- Virk efri ár og Heilsueflandi Samfélag og Ungmennafélag Akureyrar stóðu að viðburðinum, með góðum styrk frá ÍSÍ #BEACTIVE

Hér má sjá fréttina af heimasíðu UFA


By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k