Íþróttabærinn Akranes

Af hverju er
Akraneskaupstaður íþróttabær?
Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu ætlum við að staldra við og velta fyrir okkur spurningunni: Af hverju er Akranes einn fremsti íþróttabær landsins?
Hvaðan kemur þessi sterka íþróttamenning? Hverjir lögðu grunninn að þeirri sögu sem við erum svo stolt af í dag?
Til að svara þessum spurningum fáum við í heimsókn sagnfræðinginn og Skagamanninn Björn Þór Björnsson, sem mun leiða okkur í gegnum upphaf og þróun íþróttalífs á Akranesi. Þar verður sagan rifjuð upp.
Salur eldri borgara, Dalbraut 4
24. september
Kl. 17:00
Erindið stendur í um 30 mínútur og að því loknu verða umræður, spjall og spekúleringar um þá einstöku íþróttasögu sem mótað hefur bæinn okkar.
Aðgangur er ókeypis
Öll hjartanlega velkomin
Hvort sem þú ert forfallinn íþróttaáhugamaður, sagnanörd eða einfaldlega stolt/ur Skagamaður, þá er þetta upplagt tækifæri til að fræðast, rifja upp og eiga góða stund saman.
Komdu og taktu þátt í samtalinu um það hvernig Akranes varð íþróttabærinn sem við þekkjum í dag!
#BeActive
#beactiveiceland
#isiiceland
See less












