Virkniþing - aukin virkni og bætt heilsa, 19. september

Virkniþing fyrir eldra fólk verður haldið í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur föstudaginn 19. september næstkomandi.

Íþróttavika Evrópu

Dagana 23.-30. september er Íþróttavika Evrópu eða „#BeActive“, sem er alþjóðlegt hvatningarátak um hreyfingu og bætta heilsu. Það er því vel við hæfi að halda Virkniþing og stuðla á þann hátt að félagslegri virkni eldra fólks í Reykjavík og bættum lífsgæðum þeirra.

Á Virkniþinginu verða haldin áhugaverð erindi auk þess verður boðið upp á kynningu á þeirri fjölbreyttu heilsueflandi þjónustu og afþreyingu sem eldra fólki í Reykjavík stendur til boða. 

Virkniþingið hefst klukkan 10:00 og stendur til klukkan 13:00. 

Dagskrá:

Fundarstjóri: Harpa Þorsteinsdóttir, lýðheilsufulltrúi Reykjavíkurborgar

 

Að eldast í Reykjavík

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri

Verum virk

Willum Þór Þórsson, forseti íþrótta- og ólympíusambands Íslands

Það er pláss - Erindi um einmanaleika

Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri Tölum saman hjá Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Gleðidans

Auður Harpa danskennari stýrir gleðidansi

Kynningar á afþreyingu og virkni sem eldra fólki stendur til boða í Reykjavík

Meðal þeirra sem munu kynna fjölbreytta vetrardagskrá eru: Samfélagshús, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög, bókasöfn, sundlaugar, heilsugæslan og fleiri aðilar.

Gestum gefst meðal annars tækifæri á að prófa farþegahjól sem verða á staðnum.

Hvetjum fólk til að fjölmenna. Boðið verður upp á kaffi og bakkelsi.

Öll velkomin!


By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k