Íþróttavika Evrópu 2026


Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) fer fram dagana 23.–30. september 2026 í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn vaxandi hreyfingarleysi meðal almennings.
Vikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi, og er sérstök áhersla lögð á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi undir slagorðinu
#BeActive.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur, líkt og undanfarin ár, hlotið styrk úr Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) til að styðja við framkvæmd Íþróttavikunnar hér á landi. Vikan hefur víða fest sig í sessi sem árlegur viðburður þar sem sveitarfélög, íþróttahéruð (íþróttafélög) og framhaldsskólar sameinast um að bjóða uppá fjölbreytta og aðgengilega hreyfidagskrá.


Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um fjárstyrki vegna viðburða í Íþróttaviku Evrópu 2026. Sveitarfélög, íþróttahéruð og framhaldsskólar geta sótt um stuðning til að skipuleggja viðburði eða aðra hreyfingu sem hentar breiðum hópi.

Umsóknarfrestur er til 21. ágúst 2026

  • Umsókn skal innihalda:
  • drög að dagskrá
  • fjárhagsáætlun

Hámarksstyrkur er:

  • 500.000 kr. fyrir sveitarfélög og íþróttahéruð
  • 300.000 kr. fyrir framhaldsskóla

Styrkurinn er greiddur eftir á, þegar skilað hefur verið inn afriti af reikningum. Þar sem fjármagn er takmarkað verða umsóknir metnar með tilliti til fjölbreytni og áherslu á hreyfingu. Viðburðir sem innihalda virka þátttöku fá forgang fram yfir dagskrá sem byggir einungis á fyrirlestrum, þó slíkir liðir séu velkomnir sem hluti af heild.

Hvatt er til samstarfs milli sveitarfélaga, íþróttafélaga og skóla til að nýta styrkina sem best og skapa fjölbreytta dagskrá.

Umsóknareyðublað er aðgengilegt hér og frekari upplýsingar fást í gegnum netfangið beactive@isi.is.

#BeActive Night

Einn af hápunktum Íþróttavikunnar er svokallað #BeActive Night, sem fer fram laugardaginn 26. september. Um er að ræða sérstakan lykilviðburð þar sem lönd víðs vegar um Evrópu standa fyrir skemmtilegum og aðgengilegum hreyfiviðburðum.

ÍSÍ hvetur sérstaklega sundlaugar landsins til að taka þátt með því að bjóða upp á „Zumba sundlaugapartý“ þetta kvöld. Hugmyndin er að skapa líflega stemningu með tónlist og dansi í vatni þar sem fólk á öllum aldri getur tekið þátt.

Til að standa fyrir slíkum viðburði þurfa aðilar meðal annars að:

  • tryggja þátttöku í gegnum sitt sveitarfélag
  • finna leiðbeinanda (hægt er að sækja um styrk fyrir þjálfara/leiðbeinanda)
  • útfæra viðburðinn með skapandi hætti í sinni laug

Dagsetningin, 26. september, er lykilatriði fyrir #BeActive Night, en annars er útfærsla og dagskrá í höndum hvers staðar.


Íþróttavika Evrópu er stórt samvinnuverkefni þar sem markmiðið er að hvetja landsmenn til að finna sér hreyfingu við hæfi og gera hreyfingu að eðlilegum hluta af daglegu lífi. Með fjölbreyttri dagskrá víðs vegar um landið skapast tækifæri fyrir alla að taka þátt, hvort sem það er í gegnum skipulagðan viðburð eða með einfaldri daglegri hreyfingu.

Markmiðið er að sem flestir tileinki sér virkan lífsstíl og auki hreyfingu í daglegu lífi.

By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k