Göngum í skólann hefst 9. september 2026

þrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í tuttugasta sinn miðvikudaginn 9. september næstkomandi.

Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt? Skráning hér

Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en 65 skólar skráðu sig til leiks árið 2025.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann þurfa bara að fara í "Skráning" hér á síðunni og tilgreina nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á hvað viðkomandi skóli ætlar að gera í tilefni af Göngum í skólann mánuðinum.

Göngum í skólann líkur miðvikudaginn 7. október, sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn 2026.
Samstarfs og styrktaraðilar Göngum í skólann eru European Commission, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri og Sysavarnarfélagið Landsbjörg.

Varðandi nánari upplýsingar má hafa samband við Lindu Laufdal, verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4016 eða á netfangið linda@isi.is

Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Komdu og hreyfðu þig hjá okkur í Dalvíkurbyggð! -Frítt inn á alla viðburði!