Syndum 2025 er lokið

Landsátakinu Syndum lauk 30. nóvember síðastliðinn en átakið hófst með setningu í Ásvallalaug mánudaginn 3. nóvember. Um er að ræða sameiginlegt átak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Sundsambands Íslands (ÍSS), sem vilja með þessu hvetja landsmenn til meiri hreyfingar í gegnum sundið.

Syndum er viðburður undir Íþróttaviku Evrópu, sem fagnaði 10 ára afmæli í ár en markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Syndum er styrkt af Evrópuráðinu - European Commission

Til þess að taka þátt í átakinu skráðu þátttakendur sig til leiks á heimasíðu Syndum og skráðu metrana sem þeir syntu. Samtals lögðu landsmenn um 18.797,16 km (31.271 km) að baki, sem samsvarar rúmlega 14 hringjum (24) í kringum Ísland.

Það voru níu grunnskólar sem tóku þátt í Syndum að þessu sinni. Skólarnir í Reykjavík voru Engjaskóli, Foldaskóli, Hamraskóli og Rimaskóli, en þess má geta að allir þessir skólar eru í Grafarvogi. Á Suðurlandi voru það Sunnulækjarskóli (450) og Stekkjarskóli á Selfossi og Kirkjubæjarskóli. Á norðurlandi var það Borgarhólsskóli á Húsavík (200). Sundfélögin sem tóku þátt vorur Sundfélag Hafnarfjarðar (170) og Sundfélagið Óðinn á Akureyri.

Þátttakendur af öllu landinu skráðu metrana sína í alls 
58 laugum. Sú laug sem var með flesta skráða metra var Ásvallalaug í Hafnarfirði með 10.005,13 km (11.580,74 km). Sundfélag Hafnarfjarðar á sannarlega sinn þátt í að koma Ásvallalaug á toppinn en það voru 170 iðkendur sem skráðu metrana sína. Virkilega vel gert og til hamingju Ásvallalaug með árangurinn!

Skráningareikur Syndum var í gangi á meðan átakið stóð yfir og fengu heppnir þátttakendur ýmist gjafabréf frá Craft eða Arena. Þann 1. desember voru svo 10 þátttakendur dregnir út og fengu Jóladagatal frá NIVEA. 
Hér má sjá alla vinningshafa.

Syndum er styrkt af Evropuráðinu - European Commission

ÍSÍ þakkar öllum þeim sem tóku þátt og hjálpuðu til við átakið. Frekari upplýsingar um átakið má finna á Syndum.is


By Linda Laufdal • October 8, 2026
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur vðburður um allt Ísland.
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Í tengslum við #BeActive – Íþróttaviku Evrópu býður ÍSÍ, SÍBS og Krabbameinsfélagið upp á kynningu á matarvefnum Gott og einfalt, þriðjudaginn 29. september kl. 12:00.
By Linda Laufdal • September 29, 2026
Virk alla ævi - Þátttaka kvenna í íþróttum, er málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytis í samstarfi við ÍSÍ miðvikudaginn 30. september, frá kl. 16-19. Málþingið fer fram í fundarsölum B og C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið er gjaldfrjálst. Léttar veitingar í boði. Öll velkomin.
By Linda Laufdal • September 28, 2026
Í þessum fyrirlestri fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu.
By Linda Laufdal • September 25, 2026
Dramatísk rassaköst undir háfleygum tónum. Rýmisgreindaræfingar, hlátrasköll, blómasundhettur og brussugangur. Margrét Erla Maack stjórnar tveimur sundballetttímum 26. september, kl. 17 og kl. 20.
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Púttgolf á Vitatorgi – létt hreyfing, einbeiting og skemmtileg stund! Þriðjudaginn 29. september kl. 10:00–11:00 verður boðið upp á púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi í tilefni af Íþróttaviku Evrópu – #BeActive
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér má sjá dagsrká HSS í Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Hér er dagskrá Íþróttavikunnar í ár. Við hvetjum ykkur til að mæta á flesta viðburði og munið að maður er manns gaman og heilbrigður maður er meira gaman. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir
By Linda Laufdal • September 24, 2026
Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn auglýsir spennandi dagskrá Íþróttaviku Evrópu. HSÞ hvetur alla áhugasama til að mæta á viðburðina!
By Linda Laufdal • September 23, 2026
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum k