Íþróttavika Evrópu er hafin

Íþróttavika Evrópu, eða European Week of Sport, #BeActive, er nú gengin í garð og í ár fagnar átakið 10 ára afmæli. Frá árinu 2015 hefur íþróttavikan hvatt milljónir Evrópubúa til að hreyfa sig meira og tileinka sér heilbrigðari lífsstíl.

Markmið vikunnar er að hvetja fólk á öllum aldri og úr öllum samfélagshópum til að hreyfa sig, hvort sem er í íþróttum, leik eða í gegnum skipulagða viðburði. Átakið, sem var sett á laggirnar af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, nær nú til 42 landa, með þúsundum viðburða og milljónir þátttakenda ár hvert.
Dagana 23. – 30. september verður fjölbreytt dagskrá um allt land þar sem allir geta tekið þátt á sínum forsendum. 
Alla viðburði á landsvísu, má finna hér

Í tilefni afmælisins er almenningi boðið á afmælishátíð í Elliðaárdal, laugardaginn 27. september. Hér er linkur á afmælisviðburð.

Vertu með - #BeActive!


Grunnskólar um allt land geta staðið fyrir Ólympíuhlaupi ÍSÍ fram til áramóta
By Linda Laufdal September 7, 2026
Grunnskólar um allt land geta staðið fyrir Ólympíuhlaupi ÍSÍ fram til áramóta
By Linda Laufdal September 7, 2026
Mikill fjöldi sótti um og fékk styrk vegna Íþróttaviku Evrópu 2026
By Linda Laufdal August 25, 2026
YOU.FO – skemmtileg og fjölbreytt hreyfing fyrir alla 
By Linda Laufdal August 20, 2026
Göngum í skólann hefst 9. september 2026
By Linda Laufdal December 2, 2025
Landsátakinu Syndum lauk 30. nóvember síðastliðinn en átakið hófst með setningu í Ásvallalaug mánudaginn 3. nóvember. Um er að ræða sameiginlegt átak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Sundsambands Íslands (ÍSS), sem vilja með þessu hvetja landsmenn til meiri hreyfingar í gegnum sundið
By Linda Laufdal November 27, 2025
Vetraríþróttavika Evrópu (European Week of Winter Sport – EWWS) fer fram dagana 1.–8. febrúar 2026. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands – Fræðslu- og almenningsíþróttasvið (ÍSÍ), er stoltur samstarfsaðili þessa spennandi verkefnis.
By Linda Laufdal October 20, 2025
Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi
By Linda Laufdal October 17, 2025
Af hverju að stoppa núna? Við viljum sjá hvernig þið hreyfið ykkur, hvort sem það er dans, göngutúr, fimleikar eða fótbolti.
By Linda Laufdal October 17, 2025
Þátttakan í ár er með allra besta móti, en 83 grunnskólar hafa skilað inn niðurstöðum og 20.540 nemandi hlaupið samtals 81.713 kílómetra. Það er tæplega 62 hringir í kringum landið.