Syndum hefst 1. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2025. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Syndum er verkefni undir Íþróttaviku Evrópu og styrkt af Evrópusambandinu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Átakið var fyrst haldið 2021 og þá syntu landsmenn samtals 11,6 hringi í kringum landið. Í fyrra voru syntir tæplega 24 hringir en markmiðið í ár er að fá enn fleiri til að vera með og uppgötva hvað sund er frábær alhliða hreyfing.
Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans

By Linda Laufdal October 17, 2025
Af hverju að stoppa núna? Við viljum sjá hvernig þið hreyfið ykkur, hvort sem það er dans, göngutúr, fimleikar eða fótbolti.
By Linda Laufdal October 17, 2025
Þátttakan í ár er með allra besta móti, en 83 grunnskólar hafa skilað inn niðurstöðum og 20.540 nemandi hlaupið samtals 81.713 kílómetra. Það er tæplega 62 hringir í kringum landið.
By Linda Laufdal October 17, 2025
ÍSÍ þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt og óskar verðlaunaskólunum til hamingju með glæsilegan árangur. Göngum í skólann er verkefni á vegum ÍSÍ og er styrkt að hluta frá Framvkæmdarstjórn Evrópusambandsins (European Commission) undir formerkjum Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal October 17, 2025
Í ár fóru fram um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem Íslendingar hafa á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sýna að Íþróttavika Evrópu hefur fest sig í sessi sem árlegur og mikilvægur liður í að efla
By Linda Laufdal October 17, 2025
Viðburðurinn var vel sóttur og veðrið var frábært, þvert á spár veðurfræðinga. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávörpuðu gesti og minntu á mikilvægi hreyfingar á öllum æviskeiðum
Íþróttavika Evrópu, eða European Week of Sport, #BeActive, er nú gengin í garð og í ár fagnar átakið
By Linda Laufdal October 15, 2025
Íþróttavika Evrópu, eða European Week of Sport, #BeActive, er nú gengin í garð og í ár fagnar átakið 10 ára afmæli. Frá árinu 2015 hefur íþróttavikan hvatt milljónir Evrópubúa til að hreyfa sig meira og tileinka sér heilbrigðari lífsstíl.
By Linda Laufdal September 17, 2025
10 ára afmælishátíð Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 16, 2025
Kraftur í KR - Bakgarðsganga, 24. september
By Linda Laufdal September 16, 2025
HHF - dagskrá 23. - 30. september
By Linda Laufdal September 16, 2025
Fjölbrautaskólinn í Garðabær (FG) - 23. - 30. september